14janúar

Komin út aftur eftir gott jólafrí :)

Ég vil byrja á að afsaka bloggleysi undanfarið. Veit ekki hvort einhver les þetta ennþá en ef þið gerið það þá megið þið hvetja okkur áfram við að blogga þar sem þetta vill oft gleymast :)

Það sem er helst að frétta er að við vorum að koma aftur út til Alabama eftir mánaðar jólafrí! Fórum heim 14. desember eftir að hafa tekið prófin okkar snemma og flugum aftur út 10. janúar. Við flugum á NY og lentum í því leiðindaatviki að fluginu okkar til Atlanta var cancellað. Við áttum að fara beint í flug til Atlanta en þurftum að gista eina nótt í NY og flugum svo daginn eftir. Við vorum því ekki komin til Montgomery fyrr en um þrjú leytið á sunnudeginum og þá tók við geðveikin að byrja aftur í skólanum.

Þessir dagar eftir að við komum aftur út hafa einkennst af lærdómi og bókakaupum. Við misstum af tveimur dögum í skólanum svo þegar við komum vorum við strax orðin á eftir. Við erum hinsvegar að vinna það upp og gengur allt vel hérna hjá okkur.

Það sem gladdi okkur þegar við komum hinsvegar var sólin og birtan. Við vorum alveg rugluð þarna heima því það var alltaf dimmt allann sólarhringinn. Það er gott núna að vakna við sólskin og aðeins meiri hita en heima :)

Það er gaman að segja frá því að það hafa bæst við fjölskyldumeðlimir hérna í Alabama. Það er nefnilega þannig að ég er að gera alls kyns rannsóknaverkefni í skólanum þessa önn og hef því "eignast" tvo stóra froska og nokkrar rottur og mýs :) Ég þarf reyndar ekki mikið að hugsa um þessi grey en þarf að gera á þeim alls kyns tilraunir í hverri viku og svo skila inn rannsóknaskýrslum. Fyrir þá sem eru á móti rannsóknum á dýrum þá skal ég segja ykkur að ekkert ómannúðlegt fer fram við þessar rannsóknir :) Strákarnir hafa samt verið að reyna að hafa áhrif á þessa rannsókna vinnu mína með því að koma með misgóðar tillögur. Ég læt ykkur vita hvernig gengur, er að spá hvort ég ætti ekki bara að skýra froskana? :)

Já núna er ég loksins að gera eitthvað annað en að lesa á bók þessa önn. Er til dæmis að fara að kryfja mús á morgun og skoða í henni innkirtlana...SPENNANDI!!

En jæja fyrir þá sem eru ekki hrifnir af líffræði þá erum við líka að fara á Celine Dion tónleika á morgun í Birmingham. Það verður þvílíkur stemmari því við Arnar, Dóri, Arna og Helga (gestirnir hans Dóra), Tinna og Alexandra erum öll að fara. Eins gott að þetta verða góðir tónleikar því við höfum beðið eftir þessum tónleikum í meira en ár :)

Jæja þetta er komið gott í bili, ætlaði bara að koma með nokkrar línur til að láta ykkur vita að við erum á lífi. Komum aftur með blogg um helgina. Það er víst frí í skólanum á mánudaginn svo þá verður tíminn notaður til að læra og koma sér inn í alla tímana og annað slíkt.

Kveðja úr sólinni í Alabama
Imba
14. janúar 2009 klukkan 23:02
Ţórđur Arnar Ţórđarson og Ingibjörg Heiđdal
10 athugasemdir
30október

HALLOWEEN 2008

Jæja önnur tilraun til að setja inn þetta Halloween blogg. En Halloween er semsagt 31.október en við ákváðum að hafa Halloween partýið seinustu helgi þar sem allir verða í Kentucky að keppa næstu helgi og því enginn tími fyrir partý þá.

Fólk mætti mismikið klætt eins og sést berlega á myndunum. Veit ekki hvað það er með stelpur og Halloween hérna í Bandaríkjunum, mætti halda að það væri keppni í að vera í sem minnstu...allavega ef þið skoðið myndirnar bæði frá því í fyrra og núna þá sjáið þið hvað ég á við :)

En allavega við skemmtum okkur vel og endaði kvöldið á Eastside Grill sem er bar hérna rétt hjá okkur.

Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, set inn almennilegt blogg um helgina. Endilega skoðið myndirnar...
Imba (sem er að frjósa í Alabama!!!)
30. október 2008 klukkan 01:27
Ţórđur Arnar Ţórđarson og Ingibjörg Heiđdal
9 athugasemdir
21október

Henti inn myndum af skólanum okkar

Ég fattaði allt í einu að við höfum aldrei sett inn neinar myndir af skólanum okkar svo ég tók myndir sem einn strákur í liðinu hans Arnars tók og henti þeim inn á síðuna. Þar sem við gleymdum myndavélinni okkar heima á Íslandi í sumar eru allar myndirnar sem eru settar inn myndir teknar af einhverjum öðrum hehe :)

Annars er allt gott að frétta af okkur. Arnar á að fara á morgun og láta taka saumana úr sér svo hann verður ánægður með það. Þessi vika er svolítið strembin fyrir okkur þar sem Arnar er að fara í 3 próf og ég 2 svo það er nóg að gera hjá okkur. Vorum bæði að byrja í nýjum tímum í seinustu viku sem eru svona "Half-Term" tímar þar sem þú tekur þá á tvöföldum hraða en þú ert líka bara hálfa önnina í staðinn. Þess vegna er frekar mikið að gera í þeim en það er bara gaman.

Strákarnir voru að spila í gær en töpuðu því miður 2-0. Það er bara vonandi að þeir taki næsta leik sem er á laugardaginn :)

Það er farið að kólna all hressilega í Alabama eða það finnst okkur allavega. Aðallega er kalt á morgnana þegar maður er að fara í tíma en svo hitnar yfir daginn og er ágætt. Spurning hvort maður þurfi bara að fara að nota úlpuna góðu sem bíður inni í skáp eftir litla notkun undanfarna mánuði?? Nei nei það er ekki svo slæmt en kalt er það samt eftir að hafa vanist 35 stiga hita :)

Ég vil nota tækifærið og óska Pétri og Kötu innilega til hamingju með litlu prinsessuna og auðvitað fallega nafnið Rebekka Lóreley. Leiðinlegt að missa af öllu sem er að gerast hjá ykkur en við fáum vonandi að sjá hana þegar við komum um jólin. Vonum að allt gangi vel hjá ykkur :)

Halloween er á allra næsta leiti og því er von á að Grímubúningapartýin fari að hrannast inn. Heyrði því fleygt að fyrsta svoleiðis partýið yrðu næstu helgi sem þýðir að við þurfum að fara að finna okkur búninga í vikunni. Þetta er ótrúlega skemmtilegur tími hérna í Bandaríkjunum því allir mæta í búningum og þetta verða alltaf mjög skemmtileg partý. Set inn eina mynd af okkur frá því á Halloween í fyrra hérna neðst :)

Ætla annars að enda þetta á einni vísu sem ég fékk senda í tölvupósti um daginn:

Þessi gullvæga setning heyrðist við kvöldmatarborð frá einni á leikskólaaldri nýverið.
Dóttirin: "Var ég búin til í glasi eða ættleidd eða rídd?"
Sem er tilefni þessarar vísu

Úr hvaða efni er ég smídd,
af íslensku holdi eða þýdd?
Ég vita það vil
því víst er ég til.
Er ég ættleidd, úr glasi eða rídd?

Við spurningu barnsins svarar pabbinn svona

Úr ágætis efn' ertu snídd
og kostunum bestu ertu prýdd.
En eitt máttu vita
ég vann mér til hita,
því á gamaldags hátt varstu rídd



Imba og Arnar

21. október 2008 klukkan 02:57
Ţórđur Arnar Ţórđarson og Ingibjörg Heiđdal
5 athugasemdir
16október

5 spor í hökuna og ţursabit í bakinu!

Gærdagurinn var skemmtilegur hjá okkur Arnari. Arnar er búinn að vera að drepast í bakinu undanfarið og var því ekki viss hvort hann ætlaði að spila leikinn sem var í gær hjá þeim á móti Reinhardt College. Hann spilaði samt leikinn á endanum og spilaði allann tímann á miðjunni og stóð sig vel. Skoraði meira að segja eitt mark sem ég missti af því við stelpurnar fórum á Subway í hálfleik en það var víst dæmt af. Þeir unnu samt 3-0 svo það var frábært.

Það sem var samt minna skemmtilegt við þennan leik var að Arnar greyið fékk högg í enda fyrri hálfleiks þegar hann fór upp í skalla sem varð til þess að það fossblæddi úr greyinu. Hann fór út í hliðarlínu þar sem sást að hann hafði fengið skurð á hökuna sem blæddi svona duglega úr. Hann kláraði þó fyrri hálfleikinn með því að halda á grisju sem hann notaði reglulega til að þurrka blóðið í burtu hehe því dómarinn var með einhverja stæla um að það mætti ekki blæða úr honum. Arnar skildi auðvitað ekkert hvað dómarinn var að tuða, smá skurður.

Í seinni hálfleik mætti svo Þórður Arnar til leiks allur vafinn um höfuðið. Hann var því áberandi inn á vellinum með hvítt teip vafið um hausinn á sér til að halda plástrinum á. Það gerði samt ekki mikið gagn því annað slagið þurfti Arnar að stoppa til að hella blóðinu úr sem hafði bara safnast saman í góðann sekk á hökunni á honum.

Eftir leikinn fékk maður svo loks að sjá þetta og var þetta frekar ljótur skurður. Það leit frekar út fyrir að gaurinn sem hann lenti í samstuði við hefði bitið hlut úr hökunni á honum. Við fórum því á bráðamóttökuna strax eftir að leikurinn var búinn og þurftum að bíða þar í góðan tíma. Arnar var ekki einu sinni búinn að fara í sturtu eða borða eða neitt svo eftir nokkrar klst vorum við orðin frekar pirruð á þessari bið inn á stofunni eftir lækninum. Arnar var nú ekkert á því að það þyrfti að sauma hann en eftir að telja honum trú um að það þyrfti að sauma þetta fórum við á sjúkrahúsið. Þar var hann deyfður og saumað 5 spor.

Mesta svekkelsið fyrir Arnar var hins vegar að hann hafði ætlað að raka sig fyrr um daginn því hann var orðinn vel skeggjaður en nú má hann ekkert raka sig fyrr en saumarnir verða teknir úr eftir 6 daga hehe. Verður gaman að sjá hann þá :)

Annars skellti ég inn nokkrum myndum sem eru teknar hér og þar í september og október. Endilega kíkkið á það.



Kveðja
Imba og Arnar

16. október 2008 klukkan 18:50
Ţórđur Arnar Ţórđarson og Ingibjörg Heiđdal
5 athugasemdir
12október

Jćja jćja loksins blogg...

Ákvað að skella inn smá fréttum af okkur þar sem bloggið hefur legið í dvala undanfarið.

Það sem er helst að frétta er að dollarinn hefur verið að gera okkur lífið leitt þar sem hann rauk upp úr öllu valdi þegar kreppann gerði vart við sig á Íslandi. T.d. má nefna að í stað fyrir að borga um 50.000 kr í leigu á mánuði eins og við erum vön borguðum við 120.000 kr fyrir þennan mánuð. Frekar svekkjandi!

Svenni (sem býr með okkur) átti afmæli í gær svo við vorum með smá afmæliskaffi fyrir strákinn þar sem öllum íslendingunum var boðið í kaffi og kökur.

"How I Met Your Mother"  þættirnir hafa verið að tröllríða öllu á þessu heimili þar sem hver einasta auka mínúta fer í að horfa á þessa þætti. Arnar, Svenni, Halldór og Kristján Páll keyptu allar seríurnar og eru búnir að horfa á þetta allt. Því er óhætt að segja að húmorinn á þessu heimili einkennist af "How I Met Your Mother" bröndurum þessa dagana :)

Strákarnir voru að spila leik í gær gegn Lee University þar sem þeir unnu 1-0 í framlengingu eftir að mark var dæmt af þeim. Þeir eru því í góðri stöðu eins og er á þessu seasoni.

Dagarnir hérna hjá okkur eru frekar einsleitir þar sem við förum í skólann og lærum inn á milli þess sem strákarnir fara á æfingu eða ég í ræktina. Reynum svo að vera dugleg að elda á kvöldin og skiptum því niður hver eldar í hvert skiptið hehe.

Við Arnar vorum mjög heppin um daginn því við fengum rosa pakka að heiman sem var stútfullur af íslensku nammi. Takk kærlega fyrir okkur :)

Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Þetta var svona aðeins til að stytta biðina í bloggið hans Arnars sem er víst á leiðinni. Veit reyndar ekki alveg hvenær er von á því, það er víst búið að vera of lengi á leiðinni samkvæmt lesendum síðunnar :)

Vona að þið hafið það gott á klakanum þrátt fyrir þetta kreppuástand
Kv.Imba

 

12. október 2008 klukkan 20:51
Ţórđur Arnar Ţórđarson og Ingibjörg Heiđdal
3 athugasemdir
14september

Afsakiđ hvađ viđ erum ömurlegir bloggarar!!

Afsakið hvað við erum löt við að henda einhverju hérna inn á síðuna. Það er bara búið að vera brjálað að gera undanfarna viku. Mikið að gera í skólanum hjá okkur báðum og þá sérstaklega Arnari. Hef eiginlega ekki séð manninn í 2 vikur því annaðhvort er hann á æfingu, í tíma eða að læra :/ Vonandi fer eitthvað að róast hjá honum þó ég haldi nú reyndar ekki því miður.

Annars er allt mjög gott að frétta af okkur. Búið að vera mjög gott veður, grillandi hiti og sól. Jaðrar við að vera of heitt þar sem ég nenni ekki þessum hita endalaust. Strákarnir eru hinsvegar hæst ánægðir með þetta hehe :)

Strákarnir ferðuðust til Mobile, Alabama þar sem þeir spiluðu tvo leiki um helgina. Unnu fyrri leikinn 3-0 og seinni 1-0 og eru eins og er rankaðir númer 2 í landinu eða semsagt annað besta liðið í landinu. Þetta er samt fljótt að breytast og þar sem þeir unnu þessa tvo leiki verða þeir vonandi á toppnum í næst viku en við sjáum til hvað gerist. Þeir eru búnir að spila mjög vel og eru taplausir enn sem komið er. Ferðast svo aftur til Mobile næstu helgi og spila tvo leiki svo það er alltaf nóg að gera í boltanum.

Stelpurnar ferðuðust líka til Savannah, Georgia um helgina og spiluðu tvo leiki. Ég var því alein heima sem var ekkert sérstaklega skemmtilegt. Það var þó betra en ég átti von á, nýtti tímann í að læra og slaka á.

Það sem var samt ömurlegt var að mér var búið að hlakka þvílíkt til að fara í þessa ferð því við Alexandra og Jonna vorum búnar að tala mikið um þessa ferð í sumar því Jonnu lið var líka að spila á þessu móti. Þar sem ég hætti í boltanum fékk ég ekki tækifæri til að hitta Jonnu en við verðum bara að bæta úr því seinna :)

Ég lenti samt í einu furðulegu því á fimmtudagskvöldið þegar ég var að keyra í tíma þá fann ég að ég var bitin í ristina. Mér fannst þetta nú frekar skrýtið þar sem vanalega finnur maður ekkert þegar skordýr bíta þig en þetta var virkilega sárt. Ég hugsaði svo ekkert meira um þetta fyrr en á föstudagsmorgun þegar ég var að keyra strákana í rútuna þá sá ég að fóturinn var allur bólginn. Hann bólgnaði svo bara meira og meira og endaði með að ég hætti að geta verið í skóm. Þetta var alveg hrikalega óþægilegt en bólgan er að fara niður núna svo ég þarf vonandi ekki að fara til læknis. Þetta hefur líklegast verið köngulóarbit sem getur verið eitrað. Þetta var eiginlega bara fyndið því mér leið eins og fílamanninum :)

Annars er búið að vera rosalega mikið um bit núna, mikið meira enn í fyrra. Það hafa allir verið að kvarta yfir því enda er þetta mjög óþægilegt.

Núna er ég bara heima að hangsa meðan Arnar og Svenni eru upp í skóla á bókasafninu að læra. Ég er með frekar mikið samviskubit því mér finnst eins og ég eigi að vera að læra líka en það er bara róleg vika framundan hjá mér. Í kvöld eru nágrannarnir Halldór og Kristján Páll svo búnir að bjóða í mat. Held þeir ætli að splæsa í einhvern rándýran kjúklingarétt handa okkur. Ekki slæmt það :)

Annars gengur heimilislífið mjög vel, við skiptumst á að bjóða í mat og hafa nágrannarnir komið hrikalega á óvart með dugnaði í eldhúsinu. Þeir hafa meðal annars splæst í rándýra súkkulaðiköku með Rolo kremi og Pylsupasta sem var mjög gott. Einnig var stungið upp á því að baka kleinur um daginn svo ég bíð mjög spennt eftir því.

Arnar og Svenni buðu svo í mat á fimmtudaginn þegar þeir elduðu fræga Fajitasið hans Arnars. Gústi var ekki lengi að láta sjá sig enda fastagestur þegar það er borið á borð. Nágrannarnir fengu einnig sæti við borðið svo úr varð ágætismatarboð.

Jæja nú held ég að ég verði að fara að gera eitthvað gagnlegt áður en strákarnir koma heim og átta sig á því að ég er búin að sitja í tölvunni allann tímann meðan þeir voru að læra hehe :)
Imba



14. september 2008 klukkan 21:05
Ţórđur Arnar Ţórđarson og Ingibjörg Heiđdal
10 athugasemdir
02september

Loksins komnar inn myndir!!

Jæja ég tók mig til og stal myndum af öðrum bloggum og af Facebook. Setti inn nýtt albúm endilega tékkið á því :)

Annars er lítið að frétta frá Alabama þannig lagað. Erum búin að vera í 5 daga helgarfríi vegna Labor Day sem var í gær. Skólinn byrjar aftur á morgun svo við erum búin að vera dugleg að læra um helgina ásamt því að liggja á bakkanum :)

Fellibylir hafa komið sterkir inn undanfarið þar sem Gustav gekk yfir New Orleans en sem betur fer olli ekki eins miklum skemmdum og búist hafði verið við. Allir flúðu borgina svo eftir stóð tóm borg. Þeir breyttu gatnakerfinu svo allir vegir lágu út úr borginni, engin inn. Frekar mikið vesen samt því það var hvergi til bensín á bensínstöðum og fólk því kannski bensínlaust og stopp einhversstaðar. Þetta fór þó allt betur en búist var við :)

Á leiðinni er samt fellibylurinn Hanna og Ike minnir mig að hann heitir sem gætu valdið usla. Við erum samt alveg örugg þar sem við erum svo langt inn í landi hérna í Montgomery. Við höfum hinsvegar meiri áhyggjur þegar skýstrokkarnir ganga yfir :/

Skemmtilegt að segja frá því að við Alexandra löbbum varla út úr húsi án þess að við séum spurðar að því hvort við séum tvíburar!! Við skiljum ekkert í þessu því okkur finnst við ekkert líkar. Bara ljósu lokkarnir kannski :)

Arnar, Svenni, Dóri og Kristján Páll tóku sig til í gær og ákváðu að fara og kaupa nýtt gasgrill. Leiðin lá því í Walmart þar sem var splæst í þetta líka glæsilega grill. Gamla grillið var búið að syngja sitt síðasta eftir ofnotkun síðasta árs. Það fór svo að Halldór þurfti síðan að draga nýja grillið á eftir sér heim þar sem það var svo vígalegt að það komst ekki í bílinn. Halldór tók því "one for the team" og labbaði með grillið heim alla leið úr Walmart meðan við versluðum steikur á grillið:)
Svekkelsið var hinsvegar að þegar strákarnir ætluðu að fara að grilla kom í ljós að það var eitthvað bilað og þurfum við því að fara aðra ferð í Walmart og líklegast fá nýtt grill :/

Gærkveldið var snilld þar sem sjónvarpið stóð fyrir sínu. Ástæðan er sú að nýjustu seríurnar af Gossip Girl, One Tree Hill og Prison Break voru að byrja svo hér var flatmagað fram eftir kvöldi fyrir framan tv-ið á milli þess sem var hlaupið út og tékkað á grillinu :)
Á miðvikudaginn ætlum við Alexandra svo að maxa okkur þegar America's Next Top Model hefst á tveggja tíma þætti :)

Ég verð eiginlega að skella inn einni mynd hérna í lokin af strákunum á Naked Wednesday síðastliðinn miðvikudag. Það er nefnilega þannig að Dóri og Kristján Páll eru alltaf með Naked Wednesday á miðvikudögum þar sem þeir klæðast alltaf einhverjum nýjum skrautlegum brókum. Þeir breyttu útaf vananum í þetta skiptið og keyptu líka brækur handa Arnari og Svenna og afraksturinn var þessi:



Strákarnir eru svo ánægðir með þetta að þetta er meira að segja Desktop myndin í tölvunni minni eins og er:) Úff hvað tekur eiginlega við á næsta miðvikudag??
Kv.Imba


02. september 2008 klukkan 19:27
Ţórđur Arnar Ţórđarson og Ingibjörg Heiđdal
8 athugasemdir
26ágúst

Hćtt í boltanum!!!

Hæhæ

Ákvað að koma með smá fréttaskot hérna fyrir þá sem nenna ennþá að fylgjast með okkur :)

Það sem er helst í fréttum er að ég er HÆTT Í FÓTBOLTANUM hérna úti :) Tók þessa ákvörðun stuttu eftir að við komum út þar sem mig langaði bara ekkert til að spila lengur og hafði kost á að vera bara í skólanum þar sem ég var líka með námsstyrk frá skólanum. Þannig að núna þarf ég að borga eitthvað aðeins til að geta útskrifast en það er alveg þess virði :)

Seinasta ár var samt mjög gaman og ég sé alls ekki eftir því að hafa spilað en mig langaði bara ekki að spila annað ár. Líka þar sem ég útskrifast í vor (ef allir áfangar eru kenndir) þá vildi ég geta gert fleiri hluti þetta árið en ekki að allur tíminn færi í boltann eins og í fyrra.

Að öðru, strákarnir áttu sinn fyrsta leik á sunnudaginn sem endaði held ég 12-0 eða 14-0. Erfitt að fylgjast með þegar mörkin eru orðin svona mörg. Arnar spilaði hafsent og á miðju og stóð sig mjög vel. Nágrannarnir og nýgræðingarnir Halldór og Kristján Páll spiluðu einnig fínt og skoraði Halldór 3 mörk í leiknum. Ekki slæm byrjun :) Annars voru allir íslendingarnir að spila vel og verður gaman að sjá hvernig liðið verður núna hjá þeim þar sem svo margir nýir eru komnir frá því í fyrra.

Annars var þetta bara æfingaleikur og fyrsti alvöruleikurinn verður á fimmtudaginn kemur á móti Montevallo. Verður spennandi að sjá strákana í alvöru leik þar sem hitt liðið er ekki saur eins og á sunnudaginn.

Annars er skólinn kominn á fullt og ég enn að reyna að taka fleiri tíma til að útskrifast í vor. Frekar erfitt þar sem svo fáir líffræðitímar sem ég þarf að taka eru kenndir á þessarri önn. Það kemur í ljós hvernig það fer, reikna með að útskrifast allavega.

Hérna á Saddleback er lífið í góðum gír. Ég, Arnar og Svenni búin að koma okkur vel fyrir. Erum búin að bæta aðeins við innbúið þetta árið. Erum komin með nýtt sófasett og sjónvarp svo það er orðið voða huggulegt hjá okkur. "Orkusugan" eins og strákarnir kjósa að kalla sófann er vinsælasti staðurinn um þessar mundir til að chilla eftir erfiðan dag og þarf ekki að bíða lengi eftir því að auglokin fari að síga.

Við Arnar vorum mjög óheppin að gleyma myndavélinni okkar heima svo við þurfum að fara að kaupa okkur nýja til að geta skellt inn myndum af því sem er að gerast.

Síðustu daga hefur verið heldur betur óveður hérna í Alabama. Um helgina var rafmagnslaust, sjónvarpslaust, internetlaust og annað slagið símasambandslaust vegna þessa og hefur rignt svo mikið að furða þykir að ekki hafi flætt upp úr niðurföllunum. Á mánudagsmorgun vöknuðum við einnig við Tornado Warning bjöllurnar og var enginn skóli fyrir hádegi vegna yfirvofandi hættu. Við urðum þó ekki fyrir neinum skemmdum og var fínt að geta sofið á milli þess sem maður fylgdist með veðurfréttunum.

Slæmar fréttir héðan eru þær að Alexandra sleit krossbönd í hnénu eftir aðeins viku í Alabama. Hún spilar því ekkert á þessu tímabili og þarf að fara í aðgerð sem fyrst. Fer örugglega í aðgerð hérna úti á næstu tveimur vikum.

Reyni að setja inn einhverjar myndir næst svo þetta verði ekki alveg jafn þurrt blogg.
Kveðja Imba
26. ágúst 2008 klukkan 23:35
Ţórđur Arnar Ţórđarson og Ingibjörg Heiđdal
5 athugasemdir
21ágúst

Back in the States...

Hæ!

Þá erum við komin til Alabama. Héðan er alllt fínt að frétta. Í stórum dráttum er það eftirfarandi

  • Við deilum svölum með Dóra og Henson og erum ad fíla nágrannana vel
  • Við fengum þráðlaust net eftir mikið vesen í gær!
  • Kapalfyrirtækið var alveg steinhissa að við vildum ekki fá net með snúruHlæjandi
  • Við Svenni erum í hörkunni í skólanum þessa önnina - 18 og 21 eining!
  • Fengum okkur gæludýr... í einn dag. Það var skjaldbaka
  • Imba beið okkar með volga skúffuköku eftir æfingu í gær! Vel gert!!!
  • Það var fyrsta kakan sem Imba hefur bakad síðan ég man eftir henniUllandi
  • Hitinn er ekki buinn ad vera jafn suddalegur og i fyrra, ca 35 núna
  • Henson og Dóri útbjuggu forláta skvassvöll í stofunni hjá sér; virðingarvert framtak
  • Ég á enn eftir að tapa skvassleik! Sorgleg staðreynd fyrir þá bræður...
  • Henson var svo illa hakkadur á æfingu áðan að hann býður i mat í kvöld. Vel gert Henson. Gengur bara betur næst!

Farinn í tíma - bless!

Grandi

21. ágúst 2008 klukkan 21:37
Ţórđur Arnar Ţórđarson og Ingibjörg Heiđdal
5 athugasemdir
06ágúst

Round 2

Þá er víst sumarfríið okkar senn á enda og við tekur alvaran á ný. Því miður hefur þetta sumar liðið allt of hratt og skólinn kallar á ný. Skrýtið að vera að fara aftur út, annað árið okkar, við erum svo nýkomin heim eitthvað. Ég á aðeins eitt ár eftir þar sem ég mun útskrifast næsta vor með B.S. í líffræði en Arnar á eftir 2 ár í sínu Inernational Economics námi. Ekki er ákveðið hvað tekur við þegar ég er búin að klára mitt nám en líklegast að klára bara þessa læknisfræði sem tekur 4 ár í viðbót.

Við fljúgum út sunnudaginn 10.ágúst ásamt Halldóri Áskel, Kristjáni Páli, Alexöndru og Hödda sem verður frábært. Veit allavega með þessa ferðafélaga að manni mun ekki leiðast og kannski í fyrsta skipti getum við Arnar sleppt því að skemmta hvort öðru ein að spila gúrku í flugvélunum :)

Já þið sáuð rétt, við Arnar erum búin að "recruita" vini okkar frá Akureyri í skólann og öll búum við rétt hjá hvort öðru svo þetta ár verður SNILLD. Aldrei einmannalegt á Saddleback Ridge þar sem einvala lið snillinga er samankomið á eitt lítið complex :) Svo er líka von fleiri íslenskum snillingum ásamt fagmönnunum sem voru þarna fyrir, getur ekki klikkað :)

Fótboltinn bíður eftir okkur þar sem Pre-Season og síðar Seasonið byrjar á fullu stuttu eftir að við komum út. Einnig þarf maður víst að sinna skólanum svo það verður nóg að gera hjá okkur.

Það er gleðiefni að Svenni ætlar að koma aftur út og búa með okkur. Hefði verið skrýtið að vera þarna án hans en því miður ætlar Pála að vera eftir á Íslandi og fara í nám í borginni. Vona bara að hún komi oft í heimsókn :) Við Arnar og Svenni munum búa á sama complexi og í fyrra (Saddleback Ridge) en að þessu sinni í íbúð 116D en ekki 164C eins og í fyrra.

Eins og ég sagði áðan er sumarið búið að vera alltof fljótt að líða og í huga manns er maður nýkomin heim. Það er því erfitt að hugsa til þess að fara að kveðja allt þetta góða fólk aftur sem maður saknar alltaf svo mikið...en það eru alltaf jólin til að hlakka til.

Það sem hefur gerst í okkar lífi í sumar í stuttu máli er að ég var að vinna sem læknaritari á röntgendeild FSA og Arnar að vinna heima hjá sér í sveitinni. Arnar var að spila með KA en ég ákvað að taka mér smá frí en æfði þó með stelpunum í Þór/KA annað slagið þar sem Dragan var svo elskulegur að gefa mér frjálsa mætingu og sagði að ég væri alltaf velkomin:) Annars var ákveðið með löngum fyrirvara að nýta sem best tímann með fjölskyldunni og vinunum og held ég að það hafi tekist ágætlega.

Ég ákvað að lífga aðeins upp á þessa síðu þar sem við erum að fara aftur út og munum koma til með að skrifa reglulega inn hérna það sem er að gerast í MGM. Vonandi verðum við aðeins duglegri en seinasta vetur fyrir ykkur æstu blogg aðdáendur :)

Endilega kommentið svo við vitum að þið hafið ekki gleymt okkur á veraldarvefnum :)
Imba
06. ágúst 2008 klukkan 20:26
Ţórđur Arnar Ţórđarson og Ingibjörg Heiđdal
12 athugasemdir

Ađalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Velkomin á síđuna okkar!

Velkomin á síđuna okkar. Viđ ákváđum ađ setja upp síđu svo vinir og vandamenn heima á Íslandi geti fylgst međ gangi mála í Alabama. Vonumst til ađ allir skilji eftir sig spor sem hingađ koma međ athugasemdum ;)
Kv. Imba og Arnar

Arnar og Imba í prófíl

  • Nafn: Ţórđur Arnar Ţórđarson og Ingibjörg Heiđdal
  • Netfang: thordurarnar@hotmail.com / imba_101@hotmail.com
  • Stađur: Montgomery 36117, Alabama, USA
  • Heimilisfang: 116D Saddleback Ridge Drive
  • Atvinna: Í námi Auburn University Montgomery, AL
  • Hjúskaparstađa: Í sambúđ

Fyrir ţá sem ekki vita...

Viđ erum stödd í Montgomery, Alabama í háskólanámi. Erum á öđru árinu okkar ţar sem Imba útskrifast nćsta vor úr Biology Pre-Med náminu međ B.S. í líffrćđi en Arnar á 2 ár eftir til ađ klára International Economics námiđ sitt. Erum bćđi ađ spila fótbolta á skólastyrk međ háskólaliđinu okkar AUM Senators. Viđ erum í sambúđ međ Sveini Elíasi vini okkar og búum í góđu yfirlćti á Saddleback Ridge complexinu sem er í göngufćri frá skólanum.

Klukkan

Atburđarteljari